Mikilvægt er að tryggja að skil á virðisaukaskatti séu í samræmi við lög og reglur og að skattskyldir aðilar njóti þeirra réttinda sem þeim eru tryggð í lögum. Nauðsynlegt er að kunna skil á öllum þáttum virðisaukaskatts til að koma í veg fyrir skaða og beitingu refsikenndra viðurlaga vegna vanrækslu á að tilkynna um virðisaukaskattskylda starfsemi eða vegna vanrækslu á skilum virðisaukaskattsskýrslna og virðisaukaskatts.
Hjá okkur starfa sérfræðingar sem hafa sérþekkingu á virðisaukaskatti og veita viðskiptavinum okkar alla almenna ráðgjöf og þjónustu í tengslum við virðisaukaskatt.
Almenn ráðgjöf varðandi virðisaukaskatt, svo sem hvað varðar skattskyldu, skattprósentu, uppgjörstímabil, tekjuskráningu, leiðréttingar og kæruleiðir o.fl.
Umsóknir um virðisaukaskattsnúmer, þ.e. skráning á virðisaukaskattsskrá; hvort sem það er hefðbundin skráning á virðisaukaskattsskyldri starfsemi eða sértækari skráning eins og sérstök skráning vegna byggingar atvinnuhúsnæðis til útleigu eða sölu, frjáls skráning vegna útleigu atvinnuhúsnæðis eða samskráning hlutafélaga/einkahlutafélaga
Jón Ingi Ingibergsson
Sviðsstjóri, Skatta- og lögfræðiráðgjöf, PwC Iceland
Sími 550 5342
© 2017 - 2021 PwC. Allur réttur áskilinn. PwC vísar til alþjóðlegu PwC samsteypunnar og/eða eins eða fleiri aðildarfyrirtækja, sem hvert fyrir sig eru sjálfstæðir lögaðilar. Vinsamlegast skoðið www.pwc.com/structure fyrir frekari upplýsingar.