PwC_bakgrunnur.jpg

Ný hlutverk hjá PwC

Rúnar og Sigurður

Rúnar Bjarnason ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá PwC á Íslandi

PwC á Íslandi hefur styrkt skipulag sitt með ráðningu Rúnars Bjarnasonar í nýja stöðu framkvæmdastjóra rekstrar. Í nýju hlutverki mun Rúnar leiða starf félagsins á sviði markaðsmála (Clients & Market Leader), stuðla að samræmingu milli sviða og hafa yfirumsjón með rekstrarsviði félagsins.

Rúnar hefur þegar hafið störf og mun á sama tíma og hann gegnir stöðu framkvæmdastjóra rekstrar áfram sinna viðskiptavinum PwC í endurskoðun og annarri sérfræðiráðgjöf.

Rúnar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 2014. Rúnar hóf störf hjá PwC í september 2008 og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan félagsins, þar á meðal sem forstöðumaður PwC á Norðurlandi frá 2014, auk þess að hafa gegnt tímabundnu hlutverki fjármálastjóra félagsins og setið í stjórn félagsins í nokkur ár.

Sigurdur Ingvi

Sigurður Ingvi ráðinn forstöðumaður PwC á Norðurlandi

Sigurður Ingvi Rögnvaldsson hefur verið ráðinn forstöðumaður PwC á Norðurlandi og mun hann stýra starfsemi félagsins á Akureyri og Húsavík. Sigurður Ingvi hefur þegar hafið störf og hefur jafnframt bæst í eigendahóp PwC.

Sigurður Ingvi er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 2023. Sigurður Ingvi hóf störf hjá PwC 2017 og hefur gegnt fjölmörgum störfum tengdum endurskoðun og reikningsskilum, auk þess að hafa stýrt stórum verkefnum á þeim vettvangi.

Jón Ingibergsson

Jón Ingi Ingibergsson, forstjóri PwC á Íslandi

„Það er okkur sérstök ánægja að kynna Rúnar í nýtt hlutverk framkvæmdastjóra rekstrar. Hann býr yfir djúpri þekkingu á rekstri PwC sem mun nýtast félaginu vel og styrkja stöðu þess enn frekar. Jafnframt er ánægjulegt að fá Sigurð Ingva í eigendahóp félagsins og til þess að leiða okkar öflugu starfsemi á Norðurlandi. Við hlökkum til að vinna með þeim báðum og væntum mikils af þeirra störfum hér eftir sem hingað til” segir Jón Ingi Ingibergsson, forstjóri PwC á Íslandi.

---

 

 

 

 

Um PwC

PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.

Frekari upplýsingar veitir:

Katrín Ingibergsdóttir
Mannauðsstjóri

Sími: (+354) 840 5224

Email: katrin.ingibergsdottir@pwc.com

 

Fylgstu með okkur