Kröfur til stjórna hafa aukist verulega á síðustu árum. Ný könnun PwC fjallar um það sem þarf að hafa í huga.
Níu af hverjum tíu telja að bæta megi árangursmat stjórna.
Formleg framkvæmd árlegs árangursmat er meginreglan hjá stjórnum þeirra sem þátt tóku í könnuninni, en að mati stjórnenda fyrirtækjanna er umtalsvert rými til að bæta árangursmatið.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun sem PwC framkvæmdi meðal stjórnenda í bandarískum fyrirtækjum.
Þátttakendur í könnuninni telja einkum þrjár leiðir til þess fallnar að bæta árangursmat stjórna. 56% telja að tengja þurfi betur saman árangursmat og endurnýjun stjórna, 41% nefna að gera þurfi betur í að fylgja eftir ábendingum úr árangursmati og 35% telja að útvíkkun árangursmats þannig að það nái einnig til einstaklingsmats á stjórnarmönnum, myndi bæta árangursmatrið í heild sinni.
Mat stjórnenda á skilvirkni stjórna hefur almennt aukist, en áskoranir eru enn til staðar, meðal annars vegna tímaskorts stjórnarmanna, hraðra breytinga í rekstrarumhverfi og stafrænnar umbreytingar. Þá er bent á að notkun gervigreindar í stjórnarstarfi er langt undir væntingum. Helstu áhyggjuefni stjórnenda snúa að því að stjórnarmenn sitji í of mörgum stjórnum, en 47% stjórnenda nefna það sem hamlandi þátt í skilvirkni stjórna. 35% hafa áhyggjur af því að stjórnir séu of seinar til að bregðast við nýjum áhættum eða tækifærum, og 34% telja að stjórnir nái ekki að halda í við stafræna tæknibreytingar.
Meira um könnunina má finna hér.
Við getum aðstoðað þig með næstu skref
Tilvalið tæki til að ná utan um þær breytingar sem hafa átt sér stað er að framkvæma árangursmat stjórnar með PwC. Slík vinna getur hjálpað stjórnum að greina hvað gengur vel, hvar umbóta er þörf og hvernig stjórnin getur betur stutt við stefnu og árangur félagsins.
Árangursríkt mat ætti ekki að vera formsatriði. Það þarf að leiða til skýrra aðgerða, ábyrgðar og eftirfylgni. Þannig getur stjórnin þróað starfshætti sína í takt við þarfir félagsins og síbreytilegt rekstrarumhverfi. Smelltu hér ef þú vilt vita meira.