Group of people in meeting

Flestar nýskráningar í Svíþjóð – engin á Íslandi

Hand pointing to stock market data on computer screen

Á fyrri hluta ársins 2026 var verðmæti nýrra skráninga á norrænum kauphöllum mest í Noregi og Danmörku. Flestar skráningar voru þó í Svíþjóð, eða 10 af 24 nýskráningum alls. Engin nýskráning átti sér stað á Íslandi á tímabilinu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem PwC á Norðurlöndunum hefur gefið út, „Nordic IPO Watch“, og fjallað er um þróun og horfur á norrænum hlutabréfamörkuðum.

Á fyrri hluta ársins 2026 fóru fram 24 frumútboð og skráningar á norrænum kauphöllum. Tíu þeirra áttu sér stað í Svíþjóð. Noregur var í öðru sæti með sjö skráningar, þar á eftir komu Finnland með fjórar og Danmörk með þrjár. Engar skráningar áttu sér stað á Íslandi.

Á sama tíma var verðmæti nýrra skráninga mest í Noregi, eða 620 milljónir evra, og þar á eftir kom Danmörk með 531 milljón evra. Svíþjóð var í þriðja sæti með 435 milljónir evra. Alls sóttu nýskráð félög 1.764 milljónir evra í fjármögnun samanborið við 2.292 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.

Samantekt PwC má finna hér.

Fylgstu með okkur