overhead view of man and woman looking at tablet

Traustar og nákvæmar launaupplýsingar Markaðslauna PwC styðja fyrirtæki í að móta sanngjörn og samkeppnishæf laun.

Áreiðanleg launaviðmið með Markaðslaunum PwC

woman on phone looking out the window

Traustur grunnur að réttum launaákvörðunum

Í síbreytilegu atvinnulífi og efnahagsumhverfi er mikilvægt að fyrirtæki byggi launaákvarðanir sínar á traustum og áreiðanlegum upplýsingum. Með Markaðslaunum PwC fá fyrirtæki aðgang að umfangsmestu og elstu launakönnun landsins. Könnunin byggir á gögnum frá yfir 100 íslenskum fyrirtækjum og nær yfir laun rúmlega 22.000 starfsmanna eða um 10% af íslenskum vinnumarkaði. Auk víðtækrar þátttöku einkennast niðurstöðurnar af miklum áreiðanleika, enda berast gögnin beint frá launakerfum fyrirtækja, sem tryggir réttmæti og gæði þeirra. Launagögnin eru flokkuð á 160 mismunandi störf samkvæmt starfaflokkunarkerfinu ÍSTARF og ná yfir allt sviðið, frá almennum störfum til stjórnendastarfa.

Þessi árlega könnun er ómissandi verkfæri fyrir stjórnendur og aðra sem koma að launaákvörðunum, enda veitir hún dýpri innsýn í launamarkaðinn og styður við upplýsta ákvarðanatöku. Gögnin eru unnin samkvæmt ströngum gæða- og öryggiskröfum, og niðurstöður birtast í gagnvirku vefviðmóti í Power BI. Þannig hafa notendur ávallt aðgang að nákvæmum og aðgengilegum launaviðmiðum.

Markaðslaun PwC ná yfir fjölbreytt svið launamála, allt frá almennum niðurstöðum til sérsniðinna greininga fyrir einstök fyrirtæki í formi sérstakrar sérlaunagreiningar. Sérfræðingar okkar velja samanburðarhóp, sem endurspeglar sem best stærð og starfsemi viðkomandi fyrirtækis og tryggir þannig raunhæfan og markvissan samanburð við markaðinn.

Markaðslaun PwC eru öflugt verkfæri sem styður við stefnumótun í launa- og mannauðsmálum, veitir mikilvægar upplýsingar um sanngjörn og samkeppnishæf launakjör og eykur yfirsýn stjórnenda í launamálum.

Veldu traustan samstarfsaðila í launamálum. Markaðslaun PwC tryggja áreiðanlegar og vel ígrundaðar launaákvarðanir fyrir íslenskt atvinnulíf.

Fylgstu með okkur