Reynsluboltar í sjálfbærni til PwC

Hulda er nýr leiðtogi sjálfbærnimála hjá PwC

Hulda Steingrímsdóttir umhverfisstjórnunarfræðingur hóf nýlega störf hjá PwC sem leiðtogi sjálfbærnimála.

Hulda hefur fjölbreytta og áratuga langa reynslu af ráðgjöf og innleiðingu verkefna hjá bæði fyrirtækjum og hinu opinbera á sviði loftslags- og umhverfismála, samfélagsábyrgðar og verkefnastjórnun. Síðastliðin átta ár sem umhverfisstjóri Landspítala sem hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir árangur sinn í umhverfis- og loftslagsmálum. Hulda hefur auk þess leitt verkefni á sviði vistvænni innkaupa, Græn skref stofnanna, Loftlagsstefnu stjórnarráðsins, sinnt kennslu og samstarfsverkefnum hérlendis sem erlendis.

Hulda er með M.A/M.Sc. í umhverfisstjórnun og viðskiptafræði með áherslu á samfélagsábyrgð frá Handelshögskolan, Göteborgs Universitet og B.Sc í líffræði frá Háskóla Íslands.

Hulda Steingrímsdóttir

Aron Friðrik sérfræðingur í sjálfbærni

Aron Friðrik Georgsson

Aron Friðrik Georgsson hóf nýlega störf hjá PwC sem sérfræðingur í sjálfbærni. Aron hefur síðastliðin 4 ár starfað hjá Klöppum grænum lausnum í sjálfbærni- og þjónustumálum.

Aron vann áður við upplýsingaöryggisráðgjöf hjá Stika sem sameinaðist Klöppum árið 2019. Aron lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2017 og stundar nám í viðbótardiplóma í umhverfis-og auðlindafræði meðfram vinnu.


Ljósbrá Baldursdóttir, forstjóri PwC

„Við erum mjög spennt að fá þau Huldu og Aron Friðrik til liðs við okkur og stórefla þjónustu okkar á sviði sjálfbærni sem er afar mikilvægt málefni hjá PwC, sem leiðandi ráðgjafafyrirtæki á heimsvísu” segir Ljósbrá Baldursdóttir, forstjóri PwC. “Þau búa að viðamikilli reynslu á þessu sviði og verður gaman að vinna með þeim að uppbyggingu þessa mikilvæga og vaxandi þjónustusviðs innan félagsins".

Ljósbrá Baldursdóttir

Fylgstu með okkur