Samfélagsleg ábyrgð í verki - styrkir til góðgerðarmála og sjálfboðavika PwC
Að mati stjórnenda PwC er samvinna og samfélagsleg ábyrgð mjög mikilvæg fyrir heilbrigðan rekstur. PwC leggur sig fram við að styrkveitingar félagsins séu markvissar og veitir starfsmönnum svigrúm til þess að leggja sitt af mörkum.
Í september veitti PwC þremur góðgerðarfélögum 100.000 kr. styrk hverju og einu. Félögin voru valin með skoðanakönnun meðal starfsmanna og fyrir valinu urðu Ljósið, Umhyggja - félag langveikra barna og Pieta samtökin.
Sjálfboðavika starfsmanna PwC fór fram vikuna 11. til 15. október 2021 og hófst með fyrirlestri frá sviðsstjóra fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða kross Íslands, þar sem öflugt starf RKÍ og mikilvægi sjálfboðaliðastarfa var kynnt fyrir starfsmönnum PwC.
Búið var að stilla upp þremur verkefnum sem starfsfólki bauðst að styðja við á vinnutíma. Um var að ræða fataflokkun hjá RKÍ, aðstoð í eldhúsi hjá kaffistofu Samhjálpar og perlun „Lífið er núna“ armbanda með Krafti, stuðningsfélagi. Þá gafst starfsfólki einnig tækifæri til að styðja við annan málstað að eigin vali. Kom þá í ljós að starfsmenn PwC eru að sinna margvíslegum sjálfboðaliðastörfum víðsvegar á landinu.
Í sjálfboðavikunni fór einnig fram söfnun meðal starfsmanna á fatnaði, skóm og snyrtivörum fyrir skjólstæðinga Konukots og markað sem starfræktur er á laugardögum til styrktar rekstri Konukots.
Á Facebook síðu PwC á Íslandi má sjá nánari umfjöllun og myndir frá sjálfboðavikunni.