Vöxtur í skráningum á markað á Norðurlöndunum árið 2025
PwC hefur gefið út samantekt um skráningar hlutabréfa á markaði í Norðurlöndunum 2025. Alls voru 39 nýskráningar á hlutabréfamarkaði Norðurlandanna, sem er aukning frá árinu á undan þegar nýskráningar voru alls 26. Engar nýskráningar voru hins vegar á íslenska markaðnum á árinu.
Í samantektinni má sjá að alls sóttu félög 7.390 milljónir evra í fjármögnun samanborið við 1.573 milljónir evra árið áður. Mikil hækkun í fjárhæðum skýrist meðal annars af fumskráningu Verisure í Svíþjóð sem aflaði 3,7 milljarða evra og var stærsta einstaka frumskráning í Evrópu á árinu. Sem fyrr eru flestar nýskráningar í Svíþjóð en einnig var góður gangur í nýskráningum í Finnlandi og Noregi. Engar nýskráningar voru í Danmörku og Íslandi.
Horfur fyrir skráningar árið 2026
Gagnvart árinu 2026 ríkir hófleg bjartsýni á öllum Norðurlöndunum um að skráningarmarkaðurinn muni halda áfram að taka við sér. Verðbólga hefur hjaðnað og stýrivextir hafa farið lækkandi. Hagvaxtarhorfur á Norðurlöndum eru almennt taldar góðar. Því er talinn góður grunnur fyrir nýskráningar hlutabréfa. Hins vegar er vaxandi órói á pólitíska sviðinu, þar á meðal í málefnum sem snúa að Norðurlöndunum, og áfram er töluverð óvissa um þróun efnahagsmála á heimsvísu. Hvoru tveggja er til þess fallið að halda aftur af efnahagsþróun og uppgangi á hlutabréfamörkuðum.
Samantekt PwC má finna hér.