Fasteignagjöld á Íslandi í alþjóðlegum samanburði
HMS hefur birt skýrslu sem PwC tók saman um fasteignagjöld og álagningu þeirra í alþjóðlegum samanburði. Skýrslan var kynnt á fundi HMS um nýtt fasteignamat fyrir 2026.
Í skýrslunni má meðal annars sjá að fyrirkomulag fasteignamats og álagningar fasteignagjalda á Íslandi er í ágætu samræmi við alþjóðlega viðurkenndar bestu aðferðir. Hins vegar eru fasteignagjöld hærri hérlendis en í samanburðarlöndum. Meðal þess sem PwC leggur til að tekið verði til skoðunar er að veita sveitarfélögum auknar heimildir og meiri sveigjanleika til að nýta fasteignagjöld- og skatta sem stjórntæki. Þá er sérstaklega vakin athygli á því að æskilegt sé að skýra og auka sveigjanleika í regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Sjá umfjöllun um skýrslu PwC á heimasíðu HMS hér.