Fiskeldi á Íslandi hefur verið í miklum uppbyggingarfasa síðustu ár. Á tíu árum hefur útflutningsverðmæti vaxið úr 7 milljörðum króna upp í 53,4 milljarða. Sá árangur byggir á miklum fjárfestingum á tímabilinu. En á sama tíma hefur afkoma valdið vonbrigðum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt PwC um lykilstærðir í fiskeldi á Íslandi. Samantekt PwC tekur til tíu fyrirtækja í greininni en þau standa fyrir meginþorra þeirrar framleiðslu og uppbyggingar sem um ræðir. Samanlögð velta fyrirtækjanna á liðnu ári nam 55 milljörðum króna og samanlögð framleiðsla nam 55 þúsund tonnum.
Árið 2025 reyndist fyrirtækjum í greininni erfitt. Lækkun heimsmarkaðsverðs fyrir eldisafurðir hafði neikvæð áhrif á reksturinn og ofaní það lentu einstaka framleiðendur í sértækum áföllum í framleiðslu. Þetta leiddi til þess að á árinu 2025 varð samanlögð EBITDA framlegð fyrirtækjanna neikvæð sem nam rúmum 9 milljörðum króna og samanlagt tap um 17,4 milljörðum króna.
Uppbygging og vöxtur síðustu ára hefur einkum verið í sjókvíaeldi og megnið af framleiðslu og útflutningsverðmætum kemur úr sjókvíaeldi. Um þessar mundir á sér stað mikil uppbygging í landeldi og stærstur hluti fjárfestingar á síðasta ári er hjá fyrirtækjum í landeldi. Miðað við fram komnar opinberar upplýsingar um fyrirhugaðar fjárfestingar og framleiðslumagn er það mat PwC að heildarfjárfesting boðaðra verkefna sé á bilinu 360-400 milljarðar króna.