Stjórnarlaun hækka umtalsvert á milli ára
Stjórnarlaun íslenskra fyrirtækja hækkuðu töluvert á milli áranna 2024 og 2025. Miðgildi árslauna stjórnarformanna hækkaði um tæp 16% á einu ári og hækkunin nemur um 24% frá árinu 2023. Mest var hækkunin hjá stjórnarformönnum lífeyrissjóða en laun þeirra hækkuðu um 35% á milli ára. Miðgildi almennra stjórnarlauna hækkar um rúm 20% milli ára.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt PwC og Attentus á stjórnarlaunum og launum forstjóra. Töluverður munur er áfram á stjórnarlaunum eftir því hvort um er að ræða skráð félög, ríkisfyrirtæki eða lífeyrissjóði. Skráð félög greiða hæstu stjórnarlaunin en miðgildi árslauna stjórnarformanna þeirra var 12,7 milljónir króna árið 2025. Í samantektinni er meðal annars fjallað um þróun stjórnarlauna og launa forstjóra, samsetningu stjórna og greiðslur fyrir nefndarstörf.
Kynjahlutfall í stjórnum er nokkuð jafnt en önnur mynd blasir við þegar stjórnarformenn eru skoðaðir. Einungis 13% stjórnarformanna skráðra félaga eru konur, þótt konur séu 47% allra stjórnarmanna hjá skráðum félögum. Hjá ríkisfyrirtækjum eru konur hins vegar 50% stjórnarformanna og hjá lífeyrissjóðum 36%.
Samhliða greiningunni var gerð könnun meðal stjórnarformanna og stjórnenda. Þegar spurt var hvaða bakgrunnur skipti mestu máli hjá stjórnarmönnum nefndu 85% svarenda þekkingu á þeim markaði sem fyrirtækið starfar á, samanborið við 62% árið áður. Þetta er breyting frá fyrra ári þegar stjórnunarreynsla var sá bakgrunnur sem flestir töldu mikilvægastan. Gervigreind og tækninýjungar skera sig jafnframt úr þegar spurt er um helstu áskoranir stjórna næstu fimm árin en 70% svarenda nefna þann þátt, samanborið við 51% árið áður.
PwC á Íslandi býður upp á víðtæka þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, endurskoðunar og skattamála. PwC gefur árlega út skýrsluna Markaðslaun á Íslandi (Markaðslaun PwC), þar sem er að finna ítarlega greiningu á launaupplýsingum íslenskra fyrirtækja.
Attentus sérhæfir sig í alhliða mannauðsráðgjöf fyrir íslensk fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. Attentus veitir ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri út frá áherslum mannauðsstjórnunar ásamt því að bjóða upp á sálfræðiþjónustu með áherslu á atvinnulífið.
Samantekt PwC og Attentus er til sölu hjá PwC og Attentus og er hægt að panta skýrsluna á hér: https://www.pwc.is/is/thjonusta/markadslaun-og-greiningar/stjornarlaun.html